Starf yfirlæknis barna- og unglingageðdeildar er laust til umsóknar. Yfirlæknir er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi; þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og rekstrarábyrgð. Auk þess gegnir yfirlæknir mikilvægu hlutverki í kennslumálum og uppbyggingu vísindastarfs. Næsti yfirmaður er forstöðulæknir kvenna- og barnaþjónustu. Leitað er eftir sérfræðilækni í barna- og unglingageðlækningum með reynslu og hæfni til að vera í forystu fyrir þjónustu við sjúklinga, umbótastarf, öryggismál og uppbyggingu mannauðs í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra kvenna- og barnaþjónustu og annað starfsfólk. Viðkomandi þarf að búa yfir afburða hæfni í samskiptum og stuðla að teymisvinnu innan deildar, við aðra stjórnendur og samstarfsaðila. Gerð er krafa um helgun í starfi yfirlæknis. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið 1. júní 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun barna- og unglingageðlækninga, þ.m.t. kennslumál og vísindastarf Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði einingarinnar Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna á einingunni Framfylgir stefnumótun og áherslum framkvæmdastjórnar Íslenskt sérfræðileyfi í barna- og unglingageðlækningum Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum Reynsla í barna- og unglingageðlækningum Leiðtogahæfni og vilji til að leiða breytingar og umbætur Færni í stjórnunarhlutverki, þ.e. fagleg ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagsleg ábyrgð Reynsla af kennslu og vísindastörfum og sýn til framtíðar á þeim sviðum Frumkvæði og metnaður til að ná árangri Skýr framtíðarsýn og geta til að fylgja henni eftir Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli Hreint sakavottorð Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert. Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins. Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um: Fyrri störf, menntun og hæfni Félagsstörf og umsagnaraðila Nauðsynleg fylgiskjöl: Vottað afrit af prófskírteinum. Afrit af lækninga- og sérfræðileyfum sem og vottuð afrit af erlendum leyfum (ef við á). Staðfesting á læknis-, stjórnunar- og kennslustörfum. Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af læknis-, kennslu-, vísinda- og stjórnunarstörfum. Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed. Kynningarbréf með framtíðarsýn umsækjenda varðandi starfið og sérgreinina auk rökstuðnings fyrir hæfni. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað. Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002. Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að. Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, yfirlæknir, sérfræðilæknir Tungumálahæfni: íslenska 5/5, enska 5/5 Staðsetning: Dalbraut, 105 Reykjavík Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 22.04.2026 Dögg Hauksdóttir Tölvupóstur: dogghauk@landspitali.is Sími: 543-1000 Þjónustuaðili Upplýsingar um starf Starf Yfirlæknir barna- og unglingageðdeildar Staðsetning Höfuðborgarsvæðið Starfshlutfall 100% Starf skráð 01.04.2026 Umsóknarfrestur 22.04.2026 Stafrænt Ísland Opinberir aðilar Persónuverndarstefna IS Notendaskilmálar English Facebook Akstur og bifreiðar Atvinnurekstur og sjálfstætt starfandi Dómstólar og réttarfar Fjármál og skattar Fjölskylda og velferð Heilbrigðismál Húsnæðismál Iðnaður Innflytjendamál Launþegi, réttindi og lífeyrir Málefni fatlaðs fólks Menntun Neytendamál Samfélag og réttindi Samgöngur Umhverfismál Vegabréf, ferðalög og búseta erlendis Samráðsgátt Undirskriftalistar Opnir reikningar ríkisins Tekjusagan Ríkisreikningur
Höfuðborgarsvæðið | Reykjavík